Nú get ég sko sagt ykkur fréttir! Á miðvikudaginn var allur
skólinn kallaður á fund klukkan 2 og okkur tilkynnt að við værum að
fara í ferðalag og ættum og taka með okkur hlý föt, svefnpoka og
fl. Síðan klukkan 3 var búið að skipta öllum í lið og liðin látin
ganga niður í bæ, sú ferð tók cirka 1 tíma og þá kom rúta að sækja
okkur og keyrði okkur út í sveit. Þar vorum við skilin eftir úti í
vegakannti m.kort og vasaljós og látin ganga á stað sem merktur var
á kortið. By the way við vissum ekkert hvar við vorum. Eftir 3 tíma
göngu í grenjandi rigningu komum við á áfangastað og bjuggumst við
heitu kakói og e-h að borga en NEI!
Þá vorum við tekin, eitt lið í einu, fengum 1 rúgbrauðsneið og
gulrót á mann og nýtt kort. Síðan þurftum við að labba á næsta
post, þar var okkur skipað að klæða okkur úr fötunum og tæma
töskurnar. Þar var leitað á okkur og tjekkað hvort við værum með
úr, pening eða síma. Svo var okkur skipað að labba á næsta post, og
næsta og næsta og 7 aðra. Á hverjum posti þurftum við að gera e-h
eins og skríða gegnum rör, labba blindandi gegnum skóginn.. Svo um
5 leytið um nóttina var okkur leyft að fara sofa og búa til skíli
úr plastdúk! Svo sváfum við kanski í 2 tíma í ískulda og rigningu.
Þá vorum við vakin og látin hlaupa til þess að mega fá morgunmat,
sem var by the way ein samloka handa öllu liðinu 1-2 munnbitar á
mann takk fyrir...
síðan tók við annar dagur sem einkenndist af göngu á milli
pósta, sundi út í ískalt vatn á nærfötunum og engum mat!
Þetta var það ERFIÐASTA sem ég hef gert á ævinni! Ég var
gjörsamlega búin á því þegar heim var komið, liðin löbbuðu víst á
milli 70 -100 km á einum og hálfum sólarhringi og fengu næstum sem
ekkert að borða!
kv. dóra survivor!